LEIKTÍMINN
Persónuverndarstefna
Persónuvernd notenda skiptir máli hjá Leiktímanum.
Aðeins er safnað þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru
til að veita og þróa þjónustuna.
Hvaða upplýsingar eru vistaðar?
Þegar þú stofnar aðgang geta verið vistaðar upplýsingar
sem þú skráir sjálfur, svo sem nafn, netfang, leikir og
aðrar upplýsingar sem tengjast notkun þinni á Leiktímanum.
Ef Garmin úr er tengt við Leiktímann geta einnig verið
vistuð gögn úr leikjum, svo sem:
- GPS-staðsetningar úr leik
- Vegalengd og hreyfigögn
- Hjartsláttur
- Leiktími
- Upplýsingar um leik og dómarahlutverk
Til hvers eru gögnin notuð?
Gögnin eru notuð til að birta þér þína eigin leikjasögu,
tölfræði og yfirlit innan Leiktímans og til að tryggja
virkni þjónustunnar.
Persónuleg leikja- og hreyfigögn eru ekki birt öðrum
notendum nema þú veljir sérstaklega að nota eiginleika
þar sem upplýsingum er deilt.
Geymsla og þjónustuaðilar
Leiktíminn notar utanaðkomandi þjónustur til að reka
kerfið, meðal annars fyrir innskráningu, gagnageymslu
og tæknilega virkni. Slík þjónusta fær aðeins aðgang að
upplýsingum eftir því sem nauðsynlegt er til að veita
þjónustuna.
Þín gögn
Þú getur óskað eftir upplýsingum um þau gögn sem vistuð
eru um þig og óskað eftir leiðréttingu eða eyðingu þeirra.
Persónuverndarstefnan getur verið uppfærð eftir því sem
Leiktíminn þróast eða nýir eiginleikar bætast við.